Harry Potter klúbbur Borgarbókasafnið Gerðuberg
Harry Potter klúbbur fyrir 13-16 ára

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Ungmenni

Klúbbur I Harry Potter fyrir 13-16 ára I Gerðuberg

Fimmtudagur 10. febrúar 2022

Athugið að klúbburinn byrjar 10. febrúar!

Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Harry Potter.
Í klúbbnum koma aðdáendur Harry Potters saman til að spila, spjalla, teikna, horfa eða bara allt það sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera sem tengist Harry Potter.
Einnig er boðið upp á skemmtilegar smiðjur, s.s. Quidditch kennslu, tálgun töfrasprotagerð, búningagerð o.fl.
Klúbburinn er annan hvern fimmtudag kl. 16.00-17.30 í Gerðubergi í OKinu.

Leiðbeinendurnir eru mestu Harry Potter aðdáendur safnsins og tökum við vel á móti öllum krökkum.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald en skráning er nauðsynleg hér: lilja.rut.jonsdottir@reykjavik.is

Nánari upplýsingar:
Lilja Rut Jónsdóttir
lilja.rut.jonsdottir@reykjavik.is