Um þennan viðburð
Tími
13:15 - 14:15
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Fræðsla
Spjall og umræður
Glæpafár á Íslandi | Skúli Sigurðsson situr fyrir svörum
Laugardagur 21. september 2024
Hefur þú áhuga á glæpaskrifum?
Borgarbókasafnið efnir til ritsmiðju í glæpasagnaskrifum í tilefni af dagskránni Glæpafár á Íslandi. Hinn rómaði og margverðlaunaði höfundur, Skúli Sigurðsson, kíkir í heimsókn í lok smiðjunnar, spjallar um eigin skrif og situr fyrir svörum jafnt nemenda sem annarra áhugasamra gesta. Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi stýrir umræðum.
Viðburðurinn er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi sem haldin er í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag, sem fagnar 25 ára afmæli í ár.
Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar veita:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is
Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi
sunnadis@gmail.com