Skólaheimsóknir

Bókasöfn eru mikilvægur griðastaður í erli dagsins. Þangað er alltaf gott að koma – og það kostar ekkert! Á safninu geta krakkar sótt sér innblástur og tekið þátt í skapandi og lestrarhvetjandi verkefnum. Við bjóðum upp á fjölbreyttar safnkynningar fyrir börn og unglinga sem hafa það að markmiði að kynna fyrir þeim safnkostinn og aðstöðuna og að þau geti nýtt sér söfnin á sínum eigin forsendum.

Kynnið ykkur framboðið í rauða boxinu og bókið heimsókn.

Fáið frekari upplýsingar og bókið fræðslu með því að senda tölvupóst á fraedsla@borgarbokasafn.is eða hringja á söfnin.

Verkefnastjóri barna- og unglingastarfs er Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is.