Stofan - aff bidd föff

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:30
Verð
Frítt
Spjall og umræður

Stofan - Opnun AFF BIDD DÖFF fræðslu- og skemmtirýmis

Þriðjudagur 16. apríl 2024

Ástbjörg Rut Jónsdóttir og Hjördís Anna Haraldsdóttir opna tímabundið fræðslu- og skemmtirými um perlur Döff menningar og tungu

Nú gefst tækifæri til að læra fallega tungumálið sem þig langaði alltaf til að læra - hitt viðurkennda móðurmál Íslendinga - íslenskt táknmál. Hér getur þú slakað á púðahrúgunni, gluggað í bók eða horft á myndefni sem þú hefur líklega ekki séð áður. Í rýminu er hugmyndakassi sem hægt er að deila hugleiðingum og hugmyndum um stöðu menningar og tungu Döff.

Á opnunarviðburðinum gefst tækifæri til að berja augum faldar perlur Döff menningar og á lokaviðburðinum 21. apríl verður opið svið fyrir áhugasöm Döff.

Opnunarviðburður á Facebook

Rýmið er hluti af verkefninu Stofunni, þar sem ólíkir einstaklingar eða hópar fá frjálsar hendur á safninu til endurskapa valið rými eftir sínu höfði í anda Share the Care.

Frekari upplýsingar veitir:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is